|
29.11.2009 12:57:43 / gunnurg
Vá hvað er langt síðan ég hef bloggða, ekki að ég ætli að fara að gera það að venju aftur þó ég skrifi hér nokkrar línur. Ég er í smá pásu frá því að þrífa baðherbergið þ.e svona jólahreingerning má segja. Svo er það eldhúsið næst efast þó um að það verði í dag ! Ég var að borða þessa fínu grænmetisböku , orðin venja hjá mér á sunnudögum. Ég er sko í danska mataræðinu og þá verður maður víst að borða reglulega og ekki alveg hvað sem er. Það gengur alveg þokklega en mætti þó ganga betur, ég er ekki að missa 1 kg á viku eins og ég ætti að gera en kannski svona að meðaltali 0,5 kg. Það er a.m.k betri árangur en ég hef náð lengi. Svo hef ég líka verið nokkuð dugleg að mæta í ræktina , mæti svona þrisvar í viku. Er í Súperform tímum tvisvar í viku og hef svo verið að mæta í 90 mín spinning tíma á laugardögum. Já já þetta er allt að koma  Læt duga í bili
»
27.03.2009 17:51:50 / gunnurg
»
21.03.2009 14:55:16 / gunnurg
Ákvað nú að breyta útlitinu aftur á blogginu þessi svarti litur var eitthvað svo drungalegur 
Annars er allt við það sama hér. Það er dagur 79 í átakinu og það gengur ekki neitt. Eina sem gengur eftir er að ég hef ekki borðað nammi frá áramótum að undanskildum 2-3 konfekt molum með kaffinu á laugardagskvöldum hjá Lilju og Inga. En annars þá er þetta ekki að gera sig, ég þarf að vera duglegri að hreyfa mig , æltaði nú að bæta úr því í síðustu viku og byrjaði ágætlega. Síðan á miðvikudaginn þegar ég ætlaði að taka göngutúr eftir golfæfingu með Elfu þá "klikkaði" eitthvað í öðrum kálfanum. Ég fann bara smell og þvílíkan sársauka, hef hugsanlega rifið vöðva eða tognað. Er reyndar alveg þokkaleg núna en þoli þó ekki mikla hreyfingu amk ekki neina kraftgöngu.
Læt duga í bili, Guðrún Ósk var að mæta í bæinn. Stefnan er tekin á bíó í kvöld og svo Austfirðingaball .
»
11.01.2009 15:53:42 / gunnurg
Gleði eða geðheilsa ???
Til að lífga uppá gráan hversdagsleikann og gera dagana meira spennandi og innihaldsríkari, er mælst til að þú gerir eitt/fleiri/öll eftirtalin atriði reglulega...
Í hádeginu: leggðu bílnum og sittu í honum með sólgleraugu. Miðaðu með hárþurrku á bílana sem keyra framhjá. Athugaðu hvort þeir hægi á sér.
Kallaðu sjálfa þig upp í innanhúss kallkerfinu. EKKI reyna að breyta rödd þinni.
Stattu föst á því að netfangið þitt sé: Xena-Warrior-Princess@OCDSB.edu.on.ca eða Elvis-the-King@OCDSB.edu.on.ca
Hvert skipti sem einhver biður þig að gera eitthvað fyrir sig, spyrðu,má bjóða þér franskar með þessu?"
Stilltu ruslafötunni upp á skrifborðið með miða á sem segir,,Innbox"
Fylltu kaffivélina með koffínfríu kaffi í þrjár vikur. Þegar allir eru búnir að losna við koffínfíknina, fyllirðu á með espresso.
Á allar kvittanir skrifar þú; Fyrir kynlífsþjónustu.
Ljúktu öllum setningum þínum með; Samkvæmt spádómum.
Spurðu fólk hvers kyns það sé. Hlæðu brjálæðislega þegar það hefur svarað.
Taktu sérstaklega fram í bílalúgusjoppunni að pöntun þín sé,,taka með".
Farðu á ljóðakvöld og spurðu afhverju ljóðin vanti allan ryþma.
Tilkynntu vinum þínum fimm dögum fyrir partýið að þú komir ekki því þú sért ekki alveg upplögð.
Þegar peningarnir koma út úr hraðbankanum hrópar þú ,,Ég vann! Ég vann!!! Þriðja skiptið í þessari viku!!!!"
»
04.01.2009 18:12:47 / gunnurg
Jæja þá er það dagur 4 í átakinu. Ekkert nammi, engar kökur, göngutúr á hverjum degi og svo byrjar átakið í Laugum á morgun.
Ég lofaði Guðrún Ósk að setja hér inn uppskrift sem ég rakst á í Mogganum og er að elda núna.
Sætkartöflu - Gaiette fyrir fjóra
2 sætar kartöflur Fjórar plötur smjördeig ( 12 x 8 cm ) 1 egg 1 msk AB mjólk 50 gr geitaostur 1/2 stk rautt chilí 50 gr graskersfræ 1 msk ólífuolía 1 hvítlauksgeiri smá ítölsk steinselja salt og pipar
Aðferð: Kartöflurnar eru bakaðar í hýðinu í 45 mín við 200°C og svo eru þær kældar og skornar í fallega litla teninga. Smjördeigið er skorið í jafnstóra ferninga, eggið er hrært með skeið og penslað á brúnirnar á smjördeiginu, u.þ.b 1 cm. AB mjólkinni er smurt á miðjuna á smjördeiginu, kartöfluteningunum raðað i miðjuna, fínt söxuð chilí og graskersfræum stráð yfir og loks er geitaosturinn rifinn yfir. Galettið er bakað í ofni í 20 mín. við 180 °C. Á meðan það er í ofninum er búin til hvítlauksolía úr olíunni, hvítlauknum og steinseljunni og hún pensluð yfir þegar galettið er tilbúið. Að lokum kryddað með salt og pipar.
»
02.01.2009 23:46:11 / gunnurg
Var að koma að austan í dag eftir að hafa dvalið þar yfir jólin. Fínasta afslöppun eins og venjulega.
Eitt af því sem er gaman við jólin og jólamánuðinn eru allar þessar hefðir og venjur. T.d má þar nefna jólatónleika Fíladelfíu sem ég hef farið á í nokkur ár. Á Þorláksmessukvöld borðum við vinkonurnar alltaf pizzu, lengi vel í Egilsbúð en nú á Kaffihúsinu hjá Siggu. Þetta höfum við gert í mörg mörg ár og má alls klikka. Svo í hádeginu á Þorlák er venja að fara í Skötuveislu Eimskips í Egilsbúð.
Nú er það orðið þannig að ég les aldrei nema fyrir austan um jólin þá gefur maður sér tíma og les 1-2 ástar-eða spennusögur.
Nú er komið nýtt ár og þarf ég nú aldeilis að taka mig á. Ég hef skráð mig á 6 vikna átaks námskeið, keypti mér svo bolta í dag svona til að gera æfingar heima, búin að setja mér það að ég fari út að ganga á hverjum degi hvernig sem viðrar a.m.k í 20 mín en auðvitað lengur ef hentar.
Læt duga í bili
»
15.11.2008 22:35:31 / gunnurg
Hæ hæ Vildi aðeins segja ykkur frá frábærum tónleikum sem ég fór á á fimmtudagskvöldið. Norðfirðingafélagið hélt upp á 40 ára afmæli sitt með tóneikum þar sem fram komu nokkrir af okkar frábæra tónlistarfólki eins og Hildur Þórðar, Daníel Þorsteins, Hlynur Ben, Sigurður Þorbergs, Bjarni Agga, Stella og Hálfdán , Jonni Dóru ofl. Mjög skemmtileg blanda af tónlist, það var líka góð mæting eða um 300 manns. Á morgun verður svo formlega opnaður vefur félagsins, kíkið endilega á hann. http://www.nordfirdingafelagid.is/Hvet svo ykkur sem ekki eruð skráð og eruð Nobbarar að skrá sig í félagið. Gott í bili
»
01.11.2008 11:00:21 / gunnurg
Hæ hæ Jæja nú er ég loksins byrjuð á átaksnámskeiði í World Class, þrisvar í viku kl 7:15. Ég hef svo sem ekki verið á fíla svona námskeið þar sem notaðir eru pallar og fullt af sporum. Þetta námskeið er reyndar mjög fjölbreytt þar sem farið verður í stöðvaþjálfun, þolfimi og Salsa . Veit ekki alveg með þetta Salsa en jú prófaði það í gær og það er ok.
Nú er bara að standa sig, taka mataræðið í gegn og mæta á æfingar um helgar líka. Það er vel fylgst með okkur á námskeiðinu og eigum við að skila inn æfingar og matardagbókum.
Annars er bara allt fínt að frétta, farið að róast í vinnunni . Vonandi verður ekki mikið um uppsagnir en hugsanlega förum við í hlutastarfs sennilega 90 % í nokkra mánuði. Það þýðir auðvitað minni innkoma sem er ekki gott. Maður verður þá bara að spara ekkert annað að gera.
Ég tók nú einmitt þessa umræðu í vinnunni nú á dögunum . Það halda alltaf allir að þeir sem eru einhleypir og ekki með börn eigi svo mikið af peningum, en það er nú ekki endilega þannig. Við þurfum jú ein að borga af öllu svo sem hita, rafmagn, afborganir af íbúð , bíl osfrv. Matarinnkaup eru líka mjög óhagstæð og miklu hent af mat. Ég er nú að reyna að taka mig á í því. Síðan þar sem maður er einn þá er freistandi að kaup skyndibitamat , t.d þá opnaði Taco Bell hér hinum megin við götuna, ótrúlega góður skyndibiti. Peningarnir eru ótrúlega fljótir að fara.
»
26.10.2008 21:11:47 / gunnurg
SÓSÍALISMI Þú átt 2 kýr. Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra.
KOMMÚNISMI Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk.
FASISMI Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk.
NASISMI Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo.
SKRIFRÆÐI Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir svo allri mjólkinni.
HEFÐBUNDINN KAPITALISMI Þú átt 2 kýr. Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast vel. Þú hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein
SÚRREALISMI Þú átt 2 gíraffa. Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám.
BANDARÍSKA FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna hún datt niður dauð.
ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR Þú átt 2 kýr. Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að öllum 7 kúnum. Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að einni til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í hlutafjárútboði.
FRANSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð...vegna þess að þú vilt eiga þrjár kýr.
JAPANSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en framleiða tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja teiknimyndahetju, „Kúmann“, sem nær miklum vinsældum um allan heim.
ÞÝSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í mánuði og mjólka sig sjálfar.
ÍTALSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú veist ekki hvar þær eru niðurkomnar. Þú ákveður að fá þér að borða.
RÚSSNESKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú telur þær og kemst að því að þú átt 5 kýr. Þú telur þær aftur og kemst að því að þú átt 42 kýr. Þú telur þær enn og aftur og kemst að því að þú átt 2 kýr. Þú hættir að telja og opnar aðra vodkaflösku.
SVISSNESKT FYRIRTÆKI Þú átt 5000 kýr. Engin þeirra tilheyrir þér í raun. Þú rukkar eigendurna fyrir geymsluna.
KÍNVERSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í lágmarki og blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem sagði frá stöðunni eins og hún er í raun og veru.
INDVERSKT FYRIRTÆKI Þú átt tvær kýr. Þú tilbiður þær.
BRESKT FYRIRTÆKI Þú átt tvær kýr. Báðar eru með gin-og klaufaveiki
ÁSTRALSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Bissnessinn gengur vel. Þú lokar skrifstofunni og færð þér nokkra kalda til að halda upp á það.
NÝ-SJÁLENSKT FYRIRTÆKI Þú átt tvær kýr. Sú til vinstri er asskoti löguleg.
ÍRASKT FYRIRTÆKI Allir virðast eiga fjölda kúa. Þú segir öllum að þú eigir enga. Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og ráðast inn í landið. Þú átt enn engar kýr, en þú býrð þó amk í lýðræðisríki núna...
»
12.10.2008 08:55:55 / gunnurg
Hæ Langar að deila með ykkur ágætis uppskriftum af bananabrauði 3 bananar ½ bolli skykur 2 bollar spelt 1 tsk matarsódi ½ tsk salt ½ bolli kókosmjöl ( má sleppa ) Má líka setja 1 msk Kanel eða 1 tsk engifer eða Rúsinur Bakist við 175° í 50 mín Uppskrift 2 4 bananar 2 ½ bolli grófmalað spelt ½ bolli kókosmjöl ( eða flögur) 1 tsk matarsódi 1 tsk lyftiduft 1 tsk salt
Bananar stappaðir í skal og þurrefnunum og eggi hrært lauslega saman Degið sett í vel smurt aflangt form og bakð við 180° í 50 mín og síðan minni hiti í 5 mín.
»
04.10.2008 11:25:32 / gunnurg
Hæ hæ Kom heim frá Marmaris á Þriðjudaginn í kuldann hér heima. Svo er bara farið að snjóa, þetta er nú ekki hægt. Ferðin út til Tyrklands var mjög fín, dagarnir liðu yfirleitt þannig að við vöknuðum upp úr kl 9 , fórum í morgunmat síðan beint í sólbað við sundlaugina, fengum okkur svo hádegisverð og aftur í sólbað. Síðan seinnipart dags fórum við í bæinn, í heimsókn eða búðir eða bara slöppuðum af  Eitt þótti mér sérstaklega merkilegt en það er að nafnið "Gunnur" er kvennmannsnafn í Tyrkalandi. Við vorum oft spurðar umnafn og þá fékk ég amk þrisvar að heyra að nafnið mitt væri þekkt hjá þeim. Læt þetta duga í bili
»
19.09.2008 20:33:14 / gunnurg
Jæja þá styttist í Marmaris, ég er komin í frí og við Guðrún höldum í sólina á Þriðjudagsmorgun.
Ég fjárfesti í rúmi í vikunni , rúm frá Svefn & heilsu. Ég endaði með að kaup rúm sem er 1.60 ( 2 x 80 cm ) . Mér leið betur með það en 1.40 . Svo hefði ég þurft að kaupa 70 þús kr dýrara rúm ef ég ætlaði að taka 1.40 þar sem undirgrindin var dýrari.
Ég fæ rúmið eftir ca viku eð þegar ég kem að utan.
Ég ætla nú að reyna að vera dugleg og blogga úti og jafnvel setja inn myndir.
»
11.09.2008 21:40:06 / gunnurg
Hádí Ég er búin að vera að drepast í bakinu á hverjum morgni í 3 mánuði. Búin að fara á 2 vikna fresti til Kórópraktors og hann segir þetta alltaf alveg að vera að koma en ekkert gerist  Ég stóð í þeirri meiningu að rúmið mitt væri ca 6-7 ára gamalt og væri ekki alveg komið á tíma. Var þó á því að þetta gengi ekki lengur og fór því að skoða rúm . Þeir í Rekkjunni flettu því upp hvenær ég keypti rúmið og jú það eru 10 ár síðan og því augljót að ég verð bara að kaupa mér rúm Mér finnst ekkert koma til greina annað en að kaupa rafmagnsrúm, eða hvað ? Í Svefn og Heilsu er hægt að fá ágætis rúm á um 300 þús með afslætti  En þá er spurningin, hvaða stærð á ég að kaupa. Ég kem ekki fyrir 2x90 cm rúmi og því stendur valið um 2x80 cm eða hreinlega að fara niður í 140 cm ( ein dýna ), það er svo sem nóg fyrir mig eina en einhvernvegin finnst mér meira vit í að kaupa rúm sem er samtals 160 cm. Vandamálið er bara að það er alltaf smá bil á milli dýna og því sefur maður í raun í 80 cm rúmi. Ef þið hafið einhv skoðun á þessu þá endilega hjálpið mér
»
01.09.2008 20:43:16 / gunnurg
Hæ hæ Ég ætla nú enn og aftur að reyna að blogga en ég gerði tilraun til þess að blogga á föstudag / laugardag aftur og aftur en aldrei vistaðist neitt. Það sem ég ætlaði að segja þá er nú bara að verða úrelt ! en semsagt við Guðrún Ósk kíktum niður í bæ eins og þúsundir annara íslendinga að taka á móti "strákunum okkar". Fín stemming, læt fylgja með mynd. Guðrún ; við fórum niður á Arnarhól ekki Austurvöll  Síðan kom mútta á föstudagskvöldið og ætlar að stoppa í 2-3 vikur. Þannig að ég reyni að passa mig að koma snemma heim úr vinnunni a.m.k fyrir kvöldmat eða réttrasagt fljótlega eftir Leiðarljós 
»
17.08.2008 14:29:08 / gunnurg
Hæ hæ Fórum að veiða í Elliðaánum í dag og ég náði einum lax 4,5 pund. Það veiddust víst bara 4 fiskar á mogunvaktinni sem er lítið m.v undanfarna daga
»
Síður: 1 2 3 ... 16
|